Föstudagur 17. janúar 2014 kl. 13:46
Sofnaði og ók út af
Ökumaður sofnaði undir stýri á Grindavíkurvegi og ók bifreið sinni út af veginum.
Ökumaður sofnaði undir stýri á Grindavíkurvegi fyrr í vikunni með þeim afleiðingum að hann ók bifreið sinni út af veginum, öfugu megin miðað við akstursstefnu. Engin slys urðu á fólki og ætlaði ökumaðurinn sjálfur að sjá um að fjarlægja bifreið sína.