Snúið til Keflavíkur vegna veikinda flugfreyja
Þotu Icelandair á leið til Kaupmannahafnar frá Keflavík var snúið við í morgun vegna veikinda flugfreyja í farþegarými. Vélin hafði verið klukkustund á flugi þegar ákveðið var að snúa henni aftur til Keflavíkurflugvallar.
Samkvæmt upplýsingum frá Brunavörnum Suðurnesja, sem annast sjúkraflutninga á Suðurnesjum, þá voru þrjár flugfreyjur fluttar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja með sjúkabílum. Fleiri um borð veiktust eða fundu fyrir einkennum en afþökkuðu að fara á sjúkrahús til skoðunar. Þeir höfðu m.a. kastað upp.
Óskað var eftir aðstoð læknis í fluginu en læknir var um borð í vélinni og mat hann ástandið þannig að réttast væri að snúa aftur til Keflavíkurflugvallar.
Fulltrúar rannsóknarnefndar samgönguslysa tóku á móti vélinni og hafa haft þotuna til skoðunar í dag. Samkvæmt heimildum Víkurfrétta eru veikindin rakin loftræstingar í þotunni en svipuð veikindi hafa komið upp áður í sömu þotu.