Snjóruðningi hætt í Grindavík - ófært um bæinn í kvöld
Vegna lélegs skyggnis hefur snjómokstri innanbæjar í Grindavík verið hætt að sinni. Það má því búast við því að víða verði ófært um bæinn hvað og hverju, í kvöld og áfram fram eftir.
Þjónustumiðstöð Grindavíkurbæjar beinir þeim tilmælum til bæjarbúa að ferðast ekki um að óþörfu á ökutækjum sínum. Mokstur mun hefjast aftur snemma í fyrramálið, segir á vef Grindavíkurbæjar.