Bygg
Bygg

Fréttir

Snjóflóðahætta á gosstöðvum á Suðurnesjum
Föstudagur 18. febrúar 2022 kl. 18:17

Snjóflóðahætta á gosstöðvum á Suðurnesjum

Varað er við snjóflóðahættu við gosstöðvarnar í Fagradalsfjalli. Óvenjumikill snjór er nú á suðvesturhluta landsins og veikleiki hefur fundist í snjónum þar. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur sent frá sér tilkynnningu þar sem fólk er hvatt til að huga að snjóflóðahættu í vetrarútivist.

Hugum að snjóflóðahættu í vetrarútivist

Talsverður snjór er á landinu um þessar mundir og margir nýta sér aðstæðurnar í ýmis konar vetrarútivist. Við viljum minna á að þegar ferðast er í brattlendi að vetrarlagi þarf alltaf að gæta að mögulegri snjóflóðahættu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Veðurstofan gefur út snjóflóðaspár fyrir 5 landsvæði sem gefa vísbendingu um aðstæður á svæðinu. Auk þess er mikilvægt að ferðalangar meti sjálfir staðbundnar aðstæður, hugi að leiðarvali og gæti að sér í kringum svokallaðar landslagsgildrur, t.d. árfarvegi, gil og kletta. Snjóflóðabúnaður, þ.e. ýlir, skófla og stöng, ætti að vera staðalbúnaður í vetrarferðum.

Óvenjumikill snjór er nú á suðvesturhluta landsins og veikleiki hefur fundist í snjónum þar. Einnig hefur fundist veikleiki á sunnanverðum Vestfjörðum.

Bendum á frekari upplýsingar á snjóflóðasíðum vedur.is