Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Snjallir FS-ingar moka inn verðlaunum
Föstudagur 16. nóvember 2012 kl. 06:00

Snjallir FS-ingar moka inn verðlaunum

Tölvuvagn, Takkaarmbönd, Herðabeltistré og Gardínuhljóðdeyfir eru sigurvegarar Snilldarlausna Marel 2012 (www.snilldarlausnir.is ). Verðlaun eru veitt í fjórum flokkum sem sjá má hér að neðan. Veitt eru peningaverðlaun, 75.000 kr. fyrir Snilldarlausnina, 50.000 kr. fyrir hinar auk þess sem Skaparinn, sérstakur farandverðlaunagripur er veittur þeim skóla sem stendur að baki Snilldarlausninni 2012. Skaparinn var hannaður af nýútskrifuðum vöruhönnuðum frá LHÍ en smíðaður í framleiðsludeild Marel nú í haust.

Markmið Snilldarlausna er sem fyrr að gera sem mest virði úr verðlitlum hlutum. Undanfarin þrjú ár hafa þessir hlutir verið herðatré (´09), pappakassi (´10) og dós (´11) en í ár máttu þátttakendur vinna með hvaða hluti sem er.

Innovit nýsköpunar- og frumkvöðlasetur hefur umsjón með Snilldarlausnum en bakhjarl keppninnar er Marel auk sérstaks stuðnings frá Samtökum atvinnulífsins.

Snilldarlausnin 2012 kemur af Reykjanesinu en hana eiga þeir Gunnar Örn Bragason og Hrannar Elí Pálsson úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja.  Tölvuvagninn er lítill vagn á hjólum undir borðtölvuturna með sérstakri pumpu sem fest er við turninn. Vagninn má nota til að færa turninn úr stað og einnig nota pumpuna til að lyfta tölvunni upp og eiga þannig auðveldar með að tengja snúrur og annað við bakhluta turnsins. Þeir félagar lýsa hugmyndinni sinni sjálfir þannig: „Tölvuvagninn er gerður úr blikkjárni og gamalli hurðapumpu sem við félagarnir settum svo snyrtilega saman. Þetta er algjör BYLTING í tölvuheiminum.“


Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Frumlegasta hugmyndin  er nýjasti tískufylgihluturinn úr  Skagafirðinum en þær Sædís Bylgja Jónsdóttir og Helga Pétursdóttir í Fjölbrautaskóla Norðurlands Vestra á Sauðárkróki endurnýttu gömul fartölvulyklaborð og gerðu úr þeim stórglæsileg armbönd sem þær kalla Takkaarmbönd. Þær lýsa hugmyndinni svona: „Eftir miklar pælingar hvað við ættum að gera þá datt okkur í hug að nota takka af ónothæfu fartölvu lyklaborði og búa til armbönd. Kostnaður var lítill sem enginn því við áttum mest allt sem við þurftum að nota við þetta. Aðferðin er bara að losa takkana af og mála 2 umferðir og láta það svo þorna. Þegar takkarnir eru orðnir þurrir þá má líma þá á roðið með lími og láta það bíða í augnablik. Þá er það bara tilbúið til notkunar!“


 

Flottasta myndbandið kemur beint úr skápunum þeirra Árna Steins Viggóssonar og Hauks Kristinssonar úr Verzlunarskóla Íslands en þeir notuðu belti til að auka rýmið í fataskápum. Hugmyndina kalla þeir Herðabeltistré. Árni og Haukur lýsa hugmyndinni svo: „Við notuðum gamalt belti sem við vorum hættir að nota til að spara pláss í fataskápnum, gerðum fleiri göt á beltið og hengdum hreðatré í götin og hengdum svo beltið á herðatrésslána.“


 

Líklegust til framleiðslu þótti hugmyndin um gardínuhljóðdeyfi sem Suðurnesjamennirnir Þorgils Arnar Þórarinsson, Halldór Jón Grétarsson og Theódór Már Guðmundsson unnu úr afskorningum af sverum rafmagnsvír. „Með screengardínum myndast hávaði þegar er opin gluggi og rok úti og getur verið mjög pirrandi. Hugmyndinn uppgvötaðist í rafmagnsfræði þegar við vorum að vinna með rafmagnskapla og sáum afskurðinn af köplunum og hugsuðum með okkur að það væri hægt að nýta þetta í eitthvað og með gardínuna á milljón og þá ákváðum að prófa þetta og þetta virkaði svona ljómandi vel.“