Bygg
Bygg

Fréttir

Smurþrýstingur féll og því varð Keilisvélin að lenda á veginum
Nauðlendingin varð á veginum milli Gullfoss og Geysis„ fjallið í bakgrunni er Bjarnafell og Geysir er þar fyrir neðan (vantar bara gufuna frá hverunum á myndina). Ljósmyndir/Margeir Ingólfsson.
Sunnudagur 20. október 2013 kl. 16:46

Smurþrýstingur féll og því varð Keilisvélin að lenda á veginum

- Keflvíkingurinn Margeir Ingólfsson sem býr rétt hjá þar sem vélin lenti varð vitni að nauðlendingunni

„Við hjónin vorum úti við í blíðunni  þegar vélin kom svífandi mjög lágt í áttina að okkur en jörðin okkar er þarna rétt hjá. Fyrsta hugsun var að þetta væri örugglega einhver sem þekkti okkur þar sem hún lækkaði stöðugt og vaggaði lítillega,“ segir Keflvíkingurinn Margeir Ingólfsson en hann varð vitni að nauðlendingu Keilisvélarinnar fyrr í dag.

„Nauðlendingin“ varð á veginum milli Gullfoss og Geysis. „Ég heyrði ekkert í mótornum en var að hugsa að það kæmi örugglega þegar hún færi að hækka sig aftur. En það gerðist ekki og vélin lenti síðan á veginum stutt frá okkur. Hún hoppaði nokkrum sinnum á veginum og rakst lítillega í vegskilti og slóst í nokkrar vegstikur áður en hún stoppaði.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Ég held að það hafi verið mikil heppni að það var rétti vængendinn sem rakst í skiltið því ef hún hefði fengið skiltið beint á vænginn þá hefði vélin hugsanlega snúist út af veginum og hvað þá? Við drifum okkur beint að vélinni og lögðum bílum beggja vegna með „hasardið“ á en flugmaðurinn og farþeginn fóru í það að snúa vélinni til þess að stoppa ekki umferð. Þetta var fyrsta ferð flugmannsinns með farþega en hann varð að lenda þar sem smurþrýsingurinn féll, enda lak smurolía af vélinni, sagði Margeir sem er fyrrverandi oddviti Bláskógabyggðar.

Frá vettvangi í dag.