Smáskúrir í dag
Klukkan 6 var hægviðri og víða léttskýjað sunnan- og austanlands, en vestan 3-10 m/s og smáskúrir á Norður- og Vesturlandi. Hiti var frá 9 stigum á nokkrum stöðum við norður- og vesturströndina niður í 3 stiga frost í Þykkvabæ.
Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Suðvestan 3-5 m/s og smáskúrir. Suðvestan 5-10 m/s og rigning nálægt hádegi á morgun. Hiti 3 til 10 stig.
Kortið er af vefsíðu Veðurstofunnar