Smáragarður byggir 10.000 fermetra verslunarhúsnæði í Reykjanesbæ fyrir Krónuna og BYKO
Fyrsta skóflustungan að 10.000 m2 verslunarhúsnæði við Fitjabraut 5 í Reykjanesbæ var tekin síðasta föstudag. Byggingaraðili húsnæðisins er Smáragarður ehf. Það voru þau Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Guðrún Aðalsteinsdóttir framkvæmdastjóri Krónunnar, Sigurður B. Pálsson forstjóri BYKO og Guðmundur H. Jónsson stjórnarformaður Smáragarðs sem tóku í sameiningu fyrstu skóflustunguna að byggingunni að viðstöddum fulltrúum Reykjanesbæjar og þeirra fyrirtækja sem að framkvæmdinni koma.
Húsið verður tekið í notkun árið 2025 og mun hýsa stórverslanir Krónunnar og BYKO auk þess sem aðrir leigutakar munu koma inn á seinni stigum. „Reykjanesbær tekur þessari uppbyggingu hjá Smáragarði fagnandi. Þetta eru hvoru tveggja stórar og vinsælar verslanir og mikilvægir þjónustuaðilar fyrir ört stækkandi samfélag hér á Suðurnesjum,“ segir Kjartan Már, bæjarstjóri Reykjanesbæjar.
„Við erum virkilega spennt fyrir því að opna nýja og glæsilega verslun Krónunnar á Fitjabraut á árinu 2025. Við eigum frábæra viðskiptavini á Suðurnesjum og viljum leggja okkur öll fram um að færa þeim þessa sönnu Krónuupplifun. Með stærra verslunarrými mega viðskiptavinir búast við því að hin nýja verslun verði rúmgóð og björt, með auknu vöruúrvali á sem hagstæðasta verði þar sem umhverfissjónarmið eru höfð að leiðarljósi. Við munum einnig bjóða upp á „take-away“ staði og rétti inni í versluninni líkt og í öðrum stærri verslunum Krónunnar, ásamt því að gera viðskiptavinum kleift að panta sínar matvörur heim eða sækja þær í verslunina í gegnum Krónuappið. Þetta verður spennandi nýjung fyrir viðskiptavini okkar á svæðinu sem mun eflaust hjálpa mikið til við gera lífið einfaldara í amstri dagsins,“ segir Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar.
Sigurður B. Pálsson forstjóri BYKO segir að um gríðarlega stórt skref og spennandi verkefni sé að ræða fyrir starfsemi BYKO á Suðurnesjum. „Við þessa ákvörðun erum við setja niður enn eina vörðuna í farsælli sögu BYKO. Undanfarin ár hafa einkennst af mikilli uppbyggingu á svæðinu og framtíðarsýn bæjarins og þeirrar atvinnustarfsemi sem þar er að finna er einfaldlega það metnaðarfull og kraftmikil að við erum að mæta henni með nýrri verslun og þjónustu.“
BYKO hefur verið með starfsemi í Reykjanesbæ síðan 1996 í frekar þröngum aðstæðum. „Það mun breytast við opnun þessarar glæsilegu verslunar í 5.700 m2 rými undir þaki sem er meira en tvöföld stærð núverandi verslunar og útisvæðis. Það má eiginlega líkja þessu við að fara úr tjaldi í hjólhýsi. Byggingin verður Breeam-vottuð sem samræmist okkar framtíðarsýn um sjálfbærni. Uppbygging verslunarinnar miðar að því að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina og starfsfólks með loforðið „Það er einfaldast að versla í BYKO“ að leiðarljósi, umvafin gildunum okkar sem eru gleði, framsækni og fagmennska,“ segir Sigurður að lokum.
Smáragarður er fasteignafélag sem hefur á undanförnum árum staðið fyrir viðamikilli uppbyggingu á atvinnuhúsnæði víða um land sem félagið á og leigir út til viðskiptavina sinna. Að sögn Sigurðar E. Ragnarssonar framkvæmdastjóra Smáragarðs er enn þá um 1.700 m2 rými laust í húsinu sem verður leigt út í einu lagi eða í tveimur til þremur smærri rýmum.