Bygg
Bygg

Fréttir

Smáhundar bitu bréfbera
Föstudagur 28. september 2012 kl. 18:22

Smáhundar bitu bréfbera

Bréfberi hjá Póstinum tilkynnti lögreglunni á Suðurnesjum í vikunni að tveir hundar hefðu veist að sér og annar þeirra bitið sig. Bréfberinn var að bera út póst í kjallaraíbúð í umdæminu og stóð hurðin opin.

Fyrr en varði komu tveir hundar af chihuahuakyni út og beit annar hundurinn hann í fótinn svo áverkar hlutust af. Bréfberinn fór á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þar sem hann var sprautaður vegna bitsins og settur á lyfjakúr.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja er tilkynnt um mál af þessu tagi.