Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Smáfólkið í Garði verður flutt vegna slysahættu
Þriðjudagur 28. júní 2011 kl. 16:53

Smáfólkið í Garði verður flutt vegna slysahættu

Umhverfislistaverkið Little People eða „Smáfólkið“ sem staðsett er á grænu svæði framan við íþróttamiðstöðina í Garði verður fjarlægt af þeim stað þar sem það er í dag og fundinn nýr staður.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


Nokkuð hefur verið tekist á um listaverkið í bæjarstjórn Garðs. Ábendingar hafa komið fram um að listaverkið kunni að skapa slysahættu en „Smáfólkið“ er sett saman úr fjörugrjóti og járnteinn heldur því svo saman og festir við jörðina.


Vinsælt er hjá börnum að leika sér innan um listaverkið en hins vegar hefur það vilja brenna við að óprúttnir aðilar taka listaverkið í sundur og þá standa hættulegir járnteinar upp úr jörðinni.

Á síðasta bæjarstjórnarfundi í Garði var rætt um að taka listaverkið í burtu af þeim stað þar sem það er núna og finna því nýjan stað og jafnframt tryggja að verkið sé það vel fest saman að ekki skapist af því hætta.


Listaverkið Little People var unnið í Garðinum í vetur þegar þar var haldin listahátíðin Ferskir vindar í Garði en það var japanskur listamaður sem vann verkið en honum fannst vanta smávaxið fólk í Garðinn.



VF-myndir: Hilmar Bragi