Fréttir

  • Smærri farþegaskip hefðu góð áhrif fyrir Reykjaneshöfn
    Skemmtiferðaskipið Ocean Edeavour kom í Keflavíkurhöfn 30. júní sl. VF-myndir: Hilmar Bragi
  • Smærri farþegaskip hefðu góð áhrif fyrir Reykjaneshöfn
    Samstarfið við Cruise Iceland handsalað. Mynd af vef Reykjaneshafnar.
Fimmtudagur 6. september 2018 kl. 13:08

Smærri farþegaskip hefðu góð áhrif fyrir Reykjaneshöfn

- Reykjaneshöfn aðili að Cruise Iceland

Reykjaneshöfn er aðili að Cruise Iceland en í gær var undirritaður samstarfssamningur milli Reykjaneshafnar og Cruise Iceland þess efnis.
 
Á 218. fundi stjórnar Reykjaneshafnar þann 28. júní sl. samþykkti stjórnin að sækja um aðild af samtökunum. Cruise Iceland eru regnhlífarsamtök fyrirtækja úr ýmsum greinum atvinnulífsins sem vilja markaðssetja Ísland sem ákjósanlegan viðkomustað fyrir skemmtiferðaskip, bæði stór og smá. Í því felst sameiginlegt markaðsstarfa gagnvart viðkomandi útgerðum og samstarf við hliðstæð samtök erlendis. 
 
Í þessari markaðssetningu horfir Reykjaneshöfn til smærri farþegaskipa sem hefðu jákvæð áhrif á rekstur hafnarinnar og væru jafnframt ný stoð í flóru ferðamennsku á Suðurnesjum. 
 
Dæmi um slík skip er skemmtiferðaskipið Ocean Edeavour sem kom í Keflavíkurhöfn 30. júní sl.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024