Slysavarnafélagið Landsbjörg selur sjómannamerkið
Slysavarnafélagið Landsbjörg í samvinnu við Sjómannadagsráð Reykjavíkur og Hafnarfjarðar heldur utan um sölu á Sjómannadagsmerkinu í ár. Sjálfboðaliðar í björgunarsveitum og slysavarnadeildum félagsins munu standa vaktina um helgina um allt land og bjóða almenningi merkið til kaups. Allur ágóði af sölu merkisins rennur til slysavarna sjómanna.
Slysavarnafélagið Landsbjörg rekur Slysavarnaskóla sjómanna en um 2300 sjómenn sækja þar námskeið á hverju ári.