Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Slysavarnafélagið Landsbjörg og OLÍS í samstarf
Mánudagur 16. maí 2011 kl. 16:29

Slysavarnafélagið Landsbjörg og OLÍS í samstarf

Slysavarnarfélagið Landsbjörg og Olíuverzlun Íslands hf. (Olís) hafa gert með sér samstarfssamning til næstu þriggja ára. Samningurinn var undirritaður á landsþingi félagsins sem fór fram á Hellu um helgina. Olís verður einn af aðalstyrktaraðilum samtakanna og mun styðja við samtökin bæði fjárhagslega og með verulegum afsláttum af eldsneyti og öðrum vörum. Olís og Slysavarnafélagið Landsbjörg munu einnig eiga samstarf á öðrum sviðum en að framan greinir samkvæmt nánara samkomulagi hverju sinni, s.s um nýtingu samtakanna á þjónustustöðvum Olís á útkallstímum.

Ellingsen, sem er í eigu Olís, er hluti af þessu samkomulagi. En Ellingsen er umboðsaðili BRP á Íslandi sem framleiðir Ski-Doo og lynx vélsleða ásamt Can-Am fjórhjólum. Aðildarfélögum SL mun bjóðast sértilboð á þessum nauðsynlegu tækjum til björgunar mannslífa.

Öll aðildarfélög Slysvarnafélagsins Landsbjargar hafa aðgang að afsláttarkjörum sem samið hefur verið um, og jafnframt mun félagsfólk aðildarfélaganna, sem er um 18.000 talsins, á næstunni fá sendar upplýsingar um afsláttarkjör þeim til handa.

Starfsfólk Olís hlakkar mjög mikið til samstarfsins við Slysavarnafélagið Landsbjörg ásamt því að geta lagt ósérhífu starfsemi björgunarfólks lið.



Á myndinni eru Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóri Slysvarnafélagsins Landsbjargar og Sigurður K. Pálsson, forstöðumaður markaðssviðs Olís.


Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024