Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Slydduél í kvöld
Mánudagur 29. desember 2014 kl. 09:17

Slydduél í kvöld

Sunnan og suðaustan 13-20 og rigning við Faxaflóa. Hægari suðvestanátt og úrkomumeira síðdegis á morgun, en slydduél í kvöld. Sunnan 5-10 og stöku él á morgun. Hiti 4 til 9 stig, en kólnar í kvöld og hiti 1 til 4 stig á morgun, segir í spá Veðurstofu Íslands.

Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu

Sunnan 10-18 og rigning. Mun hægari suðvestanátt síðdegis og slydduél í kvöld. Sunnan 3-8 og stöku él á morgun. Hiti 4 til 8 stig, en kólnar í kvöld og hiti 1 til 4 stig á morgun.


Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag (gamlársdagur):
Suðlæg átt, 8-13 m/s og slydda eða rigning og hiti nálægt frostmarki. Él með kvöldinu, einkum S- og V-lands og frystir víða.

Á fimmtudag (nýársdagur):
Suðlæg, víða 5-10 m/s og él, en norðaustan 8-13 úti við N-ströndina . Frost 0 til 10 stig, mildast syðst.

Á föstudag:
Vestanátt S-til og slydda með köflum, en norðlægari og él fyrir norðan. Frostlaust syðst, en annars talsvert frost.

Á laugardag:
Hæg breytileg átt, dálítil él og kalt í veðri.

Á sunnudag:
Útlit fyrir austanátt með ofankomu S-til, en annars stöku él.
 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024