Slydda og rigning í kvöld

Hægviðri í dag, léttskýjað sunnan- og austanlands en dálítil súld á annesjum fyrir norðan. Hiti nálægt frostmarki, en 0 til 5 stiga frost í innsveitum. Gengur í sunnan 10-18 m/s með slyddu og síðan rigningu í kvöld og nótt, fyrst vestanlands. Snýst í suðvestan 10-15 með skúrum vestantil á landinu síðdegis á morgun. Hiti 0 til 8 stig.