Bygg
Bygg

Fréttir

Slydda eða rigning síðdegis
Þriðjudagur 28. október 2008 kl. 09:24

Slydda eða rigning síðdegis

Veðurspá fyrir Faxaflóa gerir ráð fyrir hægt vaxandi sunnanátt og slyddu eða rigningu síðdegis. Hægari í kvöld með norðan 5-10 og hiti 1-4 stig. Léttir heldur til seint í nótt.
 
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á fimmtudag:
Lengst af hægviðri og víða bjartviðri. Frostlaust við ströndina, en annars eins til átta stiga frost. Hægt vaxandi suðvestanátt um kvöldið og þykknar upp vestanlands.
 
Á föstudag:
Sunnan- og suðvestanátt, 10-15 m/s og rigning, en slydda til fjalla og þurrt að mestu norðaustanlands. Hlýnar og hiti 3 til 8 stig síðdegis.
 
Á laugardag og sunnudag:
Vestlæg átt með skúrum eða slydduéljum vestantil á landinu, en þurrt og nokkuð bjart austanlands. Kólnar heldur í bili.
 
Á mánudag:
Suðvestanátt og rigning eða slydda sunnan- og vestanlands en úrkomulítið norðaustanlands. Hiti 0 til 5 stig, kaldast norðaustanlands.
Bílakjarninn
Bílakjarninn