Slydda eða rigning
Veðurspá næsta sólarhringinn fyrir Faxaflóasvæðið: Austan 3-8 m/s og slydda eða rigning með köflum. Norðaustan 8-10 og þurrt að kalla í nótt og á morgun. Hiti 0 til 5 stig, en vægt næturfrost í uppsveitum.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu:
Austan 3-8 m/s og slydda af og til, en stöku slydduél eða skúrir í dag. Norðaustan 8-10 í kvöld, en þurrt að kalla á morgun. Hiti 1 til 5 stig að deginum.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á miðvikudag:
Norðan- og norðaustanátt, 5-10 m/s og dálítil él N- og A-lands, en bjart að mestu á S- og V-landi. Frost 0 til 6 stig, en hiti yfir frostmarki við suðvestur- og vesturströndina.
Á fimmtudag:
Suðaustan 5-13 m/s og slydda eða snjókoma S- og V-lands, en annars hægari og bjartviðri. Frostlaust við suðvestur- og vesturströndina, annars 0 til 8 stiga frost.
Á föstudag:
Vaxandi austanátt og slydda eða rigning, en snjókoma fyrir norðan. Hiti 0 til 5 stig sunnantil, annars 0 til 5 stiga frost.
Á laugardag:
Norðaustanátt með éljum, einkum á norðaustanverðu landinu, en léttir til SV-lands. Kólnandi veður.
Á sunnudag:
Austlæg átt með éljum, en yfirleitt bjart og þurrt S- og SV-lands. Kalt í veðri. ??Á mánudag:?Útlit fyrir austlæg átt með snjókomu, en síðar rigningu og hlýnandi veðri.