Slökkvistarf við erfiðar aðstæður í Njarðvík
Allt tiltækt slökkvilið Brunavarna Suðurnesja glímir nú við mikinn eld í iðnaðarhúsnæði við Bolafót í Njarðvík. Húsið er alelda. Lögreglan á Suðurnesjum er einnig með fjölmennt lið á staðnum og þá hafa björgunarsveitarmenn úr Björgunarsveitinni Suðurnes aðstoðað á vettvangi.
Tilkynnt var um eldinn á tólfta tímanum í kvöld en í húsinu eru m.a. rafmagnsverkstæði og bílaþvottastöð. Eldurinn hefur verið mestur á rafmagnsverkstæðinu. Þaðan hefur verið reynt að bjarga verðmætum og hafa slökkviliðsmenn bæði komið með sportbát og hjólhýsi út úr brennandi húsinu. Þá var fólksbíl bjargað út úr þvottastöðinni en slökkviliðsmönnum tókst að verja hana að mestu.
Þegar þessi frétt er skrifuð kl. 01 í nótt stendur slökkvistarf ennþá yfir en aðstæður á brunastað eru erfiðar og bálhvass vindur. Reykur stendur þó frá byggð.
Fleiri myndir og myndband væntanlegt með morgninum.
Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi
Ljósmyndir frá vettvangi brunans við Bolafót. Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi Bárðarson