Bygg
Bygg

Fréttir

Slökkvistarf gekk vel við Víkurbraut í gær
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
fimmtudaginn 27. júlí 2023 kl. 10:27

Slökkvistarf gekk vel við Víkurbraut í gær

Eldur kom upp í iðnaðarhúsnæði við Víkurbraut í Reykjanesbæ í gær og lagði þykkan reykmökk yfir bæinn á meðan unnið var að slökkvistarfi. Síðasta glóðin slökknaði um kvöldmatarleytið í gær og vinnur Rannsóknarlögreglan nú að rannsókn á eldsupptökum.

Jón Guðlaugsson er slökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja. „Það er mikið brunnið af því sem var þarna inni og það sem brann ekki er mikið skemmt vegna hita, sóts og vatns. Það voru sex bílar þarna inni, hugsanlega fellihýsi, einhverjar búslóðir ásamt öðru dóti og miklu magni af timbri svo það var nægur eldmatur til staðar. Milliloftið var ekki steynsteypt heldur úr timbri og einangrað með sagi svo eldurinn hafði úr nægu að moða. Það var mikill eldur þegar við komum að þessu, við náðum fljótlega tökum á honum og fengum svo Kristján frá Bílaflutningum Kristjáns á krabbabílnum og Gámafélagið kom með gám. Þá gátum við rifið járnið af og þar með komist inn og vorum búnir að slökkva síðustu glóðina um kvöldmatarleytið. Við vorum tuttugu sem komum að þessu slökkvistarfi og fimm aðrir voru að berjast við gróðureldana við eldgosið. Við fengum einn þaðan á dælubíl og svo fer eitthvað af mannskapnum aftur að gosstöðvunum í dag. Það er búið að vera nóg að gera hjá okkur að undanförnu við eldgosið, það gengur erfiðlega að ráða við þessa gróðurelda en við stjórnum ekki aðgerðum þar og hjálpum bara til. Það er ekki oft sem maður óskar eftir rigningu en hún mætti alveg fara láta sjá sig,“ sagði Jón að lokum.

Jón Guðlaugsson, vinstra megin á vettvangi brunans.

Bílakjarninn
Bílakjarninn