HSS
HSS

Fréttir

Slökkviliðsmenn á Keflavíkurflugvelli fá launahækkun
Þriðjudagur 5. júlí 2011 kl. 12:07

Slökkviliðsmenn á Keflavíkurflugvelli fá launahækkun

Bílakjarninn
Bílakjarninn

LSS, Landssamband slökkviliðs og sjúkraflutningamanna undirritaði nú í morgun kjarasamning fyrir hönd slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli til 3ja ára við Isavia. Um er að ræða sambærilegan samning og Isavia hefur gert við aðra starfsmenn fyrirtækisins. Auk eingreiðslna  hækka laun um 4,25% 1. júní eða um 12.000 kr.

Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Einar Már Jóhannesson, Eggert Karvelsson, Valdimar Leó Friðriksson, Sverrir Björn Björnsson, Sigurður Ólafsson, Ragnar Árnason og Ómar Sveinsson.