Slökkviliðs- og herlögreglumenn útskrifaðir

Keflavíkurflugvöllur er alþjóðaflugvöllur og eini varaflugvöllur tuga og hundruða flugvéla sem daglega leggja leið sína um þennan heimshluta. Jafnframt er hann varnarstöð og þrettándi fjölmennasti þéttbýliskjarni landsins með 600 byggingum og öðrum mannvirkjum sem sum hver eru hin stærstu sinnar tegundar á landinu. Rík áhersla er lögð á öflugt eldvarnaeftirlit og fyrirbyggjandi aðgerðir með víðtækri notkun fullkomins viðvörunar- og . Viðbúnaður vegna öryggis- og björgunarþjónustu við sem og aðrar flugvélar, farþega og áhafnir, er einnig viðamikill þáttur í starfseminni.
Þá sjá starfsmenn slökkviliðsins um hreinsun hættulegra efna, fermingu og herflutningaflugvéla, afgreiðslu og Þjónustu við herflugvélar sem leið eiga um flugvöllinn, rekstur sérstaks öryggisbúnaðar er stöðvar orrustuþotur í lendingu að ógleymdum ísvörnum og snjóruðningi á athafnasvæði flugvéla á Keflavíkurflugvelli sem er um 1,6 milljón fermetrar að stærð.
Slökkviliðið hefur hafnað í einu af þremur efstu sætum þessarar samkeppni kennd er við Alan G. Ogden undanfarin 16 ár og vinnur nú til æðstu verðlauna í sínum riðli fjórða árið í röð. Að sögn Haraldar Stefánssonar slökkviliðsstjóra er lykillinn að slíkri velgengni framúrskarandi starfsmenn, stöðug og góð þjálfun og óbilandi stuðningur ráðamanna, íbúa og starfsmanna á Keflavíkurflugvelli.
Myndin: Slökkviliðsmenn sem hlutu starfsskírteini ásamt Haraldi Stefánssyni og Dean M. Kiyohara yfirmanni flotastöðvar varnarliðsins.