Slökkviliðið undirmannað í stórum útköllum
Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja er undirmannað þegar stór útköll eru í gangi. Þetta kom fram í máli Jóns Guðlaugssonar á síðasta fundi stjórnar Brunavarna Suðurnesja.
Skýrsla slökkviliðsstjóra segir að liðinn mánuður hafi verið nokkuð sérstakur vegna tveggja skipsbruna og bruna í einbýlishúsi. „Það eru fjölmörg ár liðin frá því að við höfum fengið bruna af þessum toga með svo stuttu millibili. Í þessum útköllum hefur komið í ljós að við erum í raun undirmannaðir þegar stór útköll eru í gangi og þegar á sama tíma er fjöldi sjúkraflutninga sem þarf að sinna, en það kemur alltaf betur í ljós þegar mikið liggur við hversu þéttan og góðan hóp starfsmanna við höfum til þess að leysa þessi krefjandi verkefni,“ segir Jón í skýrslu sinni.
Til þess að bregðast við hafa Brunavarnir Suðurnesja, BS, stigið skref til þess að fjölga í varaliði BS og er sá hópur að fara á námskeið nú í maí í slökkvifræðum og mun taka bakvaktir í sumar og um helgar.