Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Slökkvi- og sjúkralið sent til aðstoðar í Reykjavík
Mánudagur 22. nóvember 2004 kl. 23:19

Slökkvi- og sjúkralið sent til aðstoðar í Reykjavík

Fullmannaður slökkvibíll og ásamt sjúkrabifreið voru sendir til Reykjavíkur nú á tólfta tímanum til aðstoðar Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins, sem berst við mikinn eld á athafnasvæði Hringrásar við Sundahöfn í Reykjavík.
Að sögn Sigmundar Eyþórssonar, slökkviliðsstjóra hjá Brunavörnum Suðurnesja mun slökkviliðið bæði aðstoða við slökkvistarf og eins standa vakt á slökkvistöðinni í Reykjavík, þar sem allt tiltækt lið berst við eldinn á athafnasvæði Hringrásar.

Hjólbarðar að brenna
Mikinn og þykkan svartan reykjarmökk liggur frá eldinum sem logar í húsnæði endurvinnslufyrirtækisins Hringrásar við Sundahöfn í Reykjavík. Munu það vera hjólbarðar sem brenna. Óttast er að tjón kunni að verða af völdum reyksins í skrifstofuhúsnæði sem er þarna skammt frá. Einnig leggur reykinn inn yfir miðborgina. Er fólk, sem býr í grenndinni, varað við að vera á ferli utandyra og ráðlagt að loka gluggum og kynda húsnæðið vel. Slökkviliðinu barst tilkynning um eldinn rétt fyrir klukkan tíu í kvöld og var allt tiltækt lið boðað á staðinn, segir á vef Morgunblaðsins.

Myndin: Slökkvilið og sjúkrabíll frá Brunavörnum Suðurnesja á leiðinni til Reykjavíkur. VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024