Bygg
Bygg

Fréttir

Slökkt tímabundið á ofni kísilvers vegna bilunar
Áætlað er að kveikt verði aftur upp í ofni kísilver United Silicon eftir helgi.
Fimmtudagur 2. febrúar 2017 kl. 15:37

Slökkt tímabundið á ofni kísilvers vegna bilunar

Búið er að slökkva á ofni kísilvers United Silicon í Helguvík vegna bilunar. Að sögn Kristleifs Andréssonar, stjórnanda öryggis- og umhverfismála hjá United Silicon, uppgötvaðist leki með einni af fimm töppunarholum úr ofninum á mánudag í síðustu viku. Lekinn var vegna galla í steyptri blokk í holunni en slíkar töppunarholur eru notaðar til að hleypa málmi úr ofninum. „Það var ákveðið að slökkva á ofninum og gera fullnaðarviðgerð á þessu. Það tekur nokkra daga að fá bæði blokkirnar og viðgerðarefni,“ segir hann.

Ákvörðun var í kjölfarið tekin um að endurnýja allar fimm töppunarholurnar í ofninum. Um leið og viðgerð lýkur og búið að tryggja að í lagi sé með ofninn verður kveikt aftur upp í honum, að öllum líkindum eftir helgi.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Kísilver United Silicon í Helguvík.