Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Slökkt á götulýsingu í Reykjanesbæ
Fimmtudagur 2. júní 2016 kl. 10:33

Slökkt á götulýsingu í Reykjanesbæ

- Bjartar sumarnætur framundan

Slökkt hefur verið á götulýsingum í Reykjanesbæ og verður ekki kveikt aftur fyrr en 1. ágúst. Að sögn Guðlaugs Helga Sigurjónssonar sviðsstjóra Umhverfissviðs er engin þörf á lýsingu þessa tvo björtustu mánuði ársins. „Hér er því ekki um bilun að ræða né lokun á aðgengi rafmagns til Reykjanesbæjar,“ segir Guðlaugur í viðtali á heimasíðu bæjarins.

Undanfarin tvö sumur hefur þessi háttur verður hafður á í götulýsingum bæjarsins og gefist vel, auk þess sem töluverður sparnaður hlýst af því að slökka yfir hásumarið. Nú er bara að vonast eftir björtum sumarnóttum næstu vikurnar og um að gera að njóta ljósanna frá sólinni.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024