Slógust ofurölvi
Lögreglan gekk á milli tveggja manna sem áttu í átökum fyrir utan fjölbýlishús í Njarðvík í gærkvöld. Var bundinn endi á slagsmálin milli mannanna tveggja, sem voru ofurölvi, og voru þeir fluttir á lögreglustöð þar sem þeir fengu gistingu í fangaklefa sökum ástands síns.
Þá voru tveir fimmtán ára drengir stöðvaðir þar sem þeir óku vélsleðum á opnu svæði innanbæjar í Keflavík, en akstur vélsleða innanbæjar er óheimill í Reykjanesbæ.
Vf-mynd/Hilmar Bragi
Þá voru tveir fimmtán ára drengir stöðvaðir þar sem þeir óku vélsleðum á opnu svæði innanbæjar í Keflavík, en akstur vélsleða innanbæjar er óheimill í Reykjanesbæ.
Vf-mynd/Hilmar Bragi