Slitnaði frá bryggju og rak upp í fjöru í Kokkálsvík

Haft var samband við Björgunarsveitina Björg sem tók að sér að koma bátnum á þurrt með aðstoð Skúla ST- 75, sem dró bátinn af strandstað.
Björgun bátsins gekk vel að sögn Halldórs Loga Friðgeirssonar, formanns Björgunarsveitarinnar. Þetta kemur fram á vefnum Strandir.is og þaðan er myndin einnig fengin.