Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Sleginn í andlitið á skemmtistað í nótt
Sunnudagur 12. september 2004 kl. 11:43

Sleginn í andlitið á skemmtistað í nótt

Á fimmta tímanum í nótt voru tveir menn fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, með skurði á höfði. Annar þeirra hafði verið slegin í andlitið á skemmtistað í Keflavík og var saumaður skurður á vör. Hinn hafði dottið í heimahúsi í Njarðvík og fengið skurð á höfuðið, sem sauma þurfti.

Á dagvaktinni var tilkynnt um reyk frá íbúð við Faxabraut þar hafði matur gleymst á eldavél. Talsverður reykur var í íbúðinni en ekki urðu aðrar skemmdir en af reyk.  
Þá varð tjón á bifreið er hún fór út af Flugvallarvegi í Keflavík, en ekki urðu meiðsli á fólki.

Á kvöldvaktinni var einn ökumaður kærður vegna þess að ljósum var áfátt á bifreið hans.

Um tíuleytið í gærkvöldi var óskað eftir lögreglu og sjúkrabifreið að heimahúsi í Sandgerði, þar hafði kona dottið á höfuðið er hún var að stíga upp í heitan pott, og rotast.  Hún fékk fljótlega rænu og var ekki aðgerða þörf.

Á næturvaktinni var ökumaður kærður fyrir of hraðan akstur auk þess sem lögreglan var tvisvar kölluð út vegna kvartana um hávaða í heimahúsi, þar sem tónlist var leikin helst til hátt.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024