Slasaðist við hellaskoðun
Um helgina var komið með erlenda konu, sem slasast hafði við hellaskoðun, á lögreglustöðina í Reykjanesbæ. Konan hafði verið, ásamt öðrum ferðamönnum að skoða hellinn Dolluna á Gíghæð við Grindavíkurveg, undir leiðsögn fararstjóra. Hún féll um stein rétt við innganginn, lenti á höfðinu og hlaut meðal annars skurð á enni. Konan fékk aðhlynningu á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og voru saumuð nokkur spor í enni hennar. Hún hafði verið með ennisljós og hjálm við hellaskoðunina.
Mynd úr safni.