Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Slasaðist við fall
Mánudagur 31. október 2016 kl. 11:37

Slasaðist við fall

Tvö slys urðu í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í kringum síðustu helgi. Karlmaður var að fara niður af millilofti í Innileikjagarðinum eftir að hafa verið þar að störfum. Hann hugðist nota stiga til að komast aftur niður en ekki vildi betur til en svo að stiginn rann undan honum með þeim afleiðingum að hann féll niður á gólfið. Hann fékk skurð á höfuðið og kvartaði undan eymslum. Maðurinn var fluttur á bráðamóttöku Landspítala og tilkynning send til Vinnueftirlits ríkisins.

Þá slasaðist ungur drengur þar sem hann var að spila fótbolta í Reykjaneshöllinni og féll aftur fyrir sig. Talið var að hann hefði handleggsbrotnað og var hann fluttur til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024