Bygg
Bygg

Fréttir

Slapp vel úr vinnuslysi
Mánudagur 12. desember 2005 kl. 22:04

Slapp vel úr vinnuslysi

Maður í Grindavík slapp nær ómeiddur er þrjú fiskikör féllu á hann ofan af vörubifreið er hann vann við að afferma bifreiðina. Maðurinn var fluttur á slysadeild Landsspítala Háskólasjúkrahúss í Fossvogi en reyndist einungis hafa marist nokkuð og fékk að fara heim að læknisskoðun lokinni. Þess má geta að eitt fiskikar vegur um 500 kg.

Þá var fólksbifreið ekið á ljósastaur á Reykjanesbraut á Strandarheiði en þar urðu ekki alvarleg meiðsl á fólki.
Bílakjarninn
Bílakjarninn