Slakað á sérstökum kröfum um öryggisleit

Framkvæmd öryggisleitar verður hagað með eftirfarandi hætti á Keflavíkurflugvelli þar til annað verður ákveðið:
1. Farþegum á leið til Bandaríkjanna er enn óheimilt að hafa meðferðis vökva eða vökvatengd efni. Undanþegin þessu eru nauðsynleg lyf, matvara fyrir ungabörn og varningur keyptur í flugstöðinni sem afhentur er í innsigluðum umbúðum. Einnig mega farþegar á leið til Bandaríkjanna eiga von á að lenda í aukaöryggisleit við brottfararhlið.
2. Farþegum á öðrum flugleiðum skal bent á að öryggisstarfsfólk gefur vökvum og vökvakenndum efnum sérstakan gaum.
3. Slembileit verður viðhöfð á skófatnaði í stað þess að allir farþegar þurfi að fara úr skóm.
4. Farþegar þurfa að taka fartölvur og annan rafmagnsbúnað úr handfarangri áður en farið er í gegnum vopnaleit. Rétt er að taka fram að engar nýjar takmarkanir eru á meðferð slíks búnaðar þ.á.m. farsíma og “i-pod” hljómtækja.
5. Til að flýta öryggisleit er mælt með því að farþegar taki alla málmhluti af sér og úr vösum áður en gengið er gegnum málmleitarhlið.
Flugfarþegar eru enn um sinn hvattir til að lágmarka handfarangur sinn til að tryggja greiða afgreiðslu við öryggisleit.
Yfirvöld þakka flugfarþegum sýndan skilning á breyttum aðstæðum og munu gera sitt ítrasta til að lágmarka óþægindi af þessum sökum.
Keflavíkurflugvelli 18. ágúst 2006.
Flugvallarstjórinn á Keflavíkurflugvelli.
Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli.