Bygg
Bygg

Fréttir

Slagsmál í miðbænum í nótt
Laugardagur 9. júní 2007 kl. 11:38

Slagsmál í miðbænum í nótt

Á fimmta tímanum í morgun brutust út slagsmál utan við einn skemmtistaðinn í Reykjanesbæ.  Tveir aðilar voru fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja en annar þeirra var fluttur til frekari skoðunar á Landsspítala Háskólasjúkrahús í Reykjavík. Einn aðili var handtekinn vegna málsins og gistir hann fangaklefa vegna frekari málsrannsóknar.
Lögregla hefur nýverið tekið upp vöktun á umhverrfi skemmtistaðana við Hafnargötuna með eftirlitsmyndavélum. Hafa þrjár vélar verið settar upp í miðbænum, þannig að atburðir eins og þeir í nótt eiga að vera til á myndbandi hjá lögreglu og auðvelda mjög að upplýsa ofbeldisverk. Einnig eru dyraverðir nú beintengdir við lögregluna í gegnum talstöð sem flýtir mjög fyrir útkalli.


Mynd: Myndavél lögreglunnar og Reykjanesbæjar sem sett hefur verið upp í miðbænum. Þrjár vélar þessarar tegundar hafa vakandi auga með öllu því sem gerist utan við skemmtistaðina í Reykjanesbæ.

Bílakjarninn
Bílakjarninn