Skýjað og súld öðru hverju í dag
Klukkan 6 var suðvestlæg átt, víða 8-13 m/s. Skýjað með köflum og þurrt að kalla. Hiti 5 til 13 stig, hlýjast á Dalatanga.
Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Suðvestan 8-13 m/s, skýjað og súld öðru hverju. Hætt við þoku í kvöld. Hiti 5 til 11 stig.
Kort af vefsíðu Veðurstofunnar, sýnir veðrið um hádegi í dag.