Skýjað og smáskúrir eða slydduél
Veðurhorfur á landinu: Hæg vestlæg eða breytileg átt, skýjað og smáskúrir eða slydduél, en austan 3-10 við N- og A-ströndina og dálítil slydda eða snjókoma. Hiti 0 til 6 stig, hlýjast S- og SV-lands.
Faxaflói: Hæg vestlæg átt, en suðaustlæg á morgun. Skýjað og smáskúrir eða slydduél. Hiti 2 til 6 stig.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu: Hæg vestlæg átt, en suðaustlæg á morgun. Skýjað og smáskúrir eða slydduél. Hiti 2 til 5 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag:
Austan 5-15 m/s, hvassast við suðurströndina. Rigning, einkum SA-lands, en úrkomulítið fyrir norðan. Hiti 2 til 8 stig.
Á fimmtudag:
Suðaustanátt og væta með köflum, en þurrt á norðaustanverðu landinu. Hiti svipaður.
Á föstudag:
Austlæg átt og rigning eða slydda, einkum S- og A-lands. Hiti 0 til 7 stig.
Á laugardag og sunnudag:
Breytileg átt og víða skúrir eða él. Fremur svalt.