Skýjað og milt veður á Ljósanótt
Veðurspá gerir ráð fyrir suðvestan og sunnan 3-8 m/s, en 8-13 m/s með vesturströndinni um hádegi. Skýjað og dálítil væta öðru hvoru við vestanlands, en léttir til norðaustanlands þegar líður á daginn. Suðaustan 10-15 og fer að rigna vestantil á morgun. Annars hægari vindur, súld öðru hverju suðaustantil, en bjartviðri norðaustanlands. Hiti 7 til 15 stig.
Suðvestan og sunnan 5-10 m/s. Skýjað og súld með köflum. Vaxandi suðaustanátt í kvöld, víða 10-15 í nótt. Rigning um hádegi á morgun. Hiti 8 til 13 stig.
Suðaustan 5-10 m/s og rigning sunnan- og vestanlands, en yfirleitt bjartviðri norðaustantil. Hiti 6 til 16 stig, hlýjast á Norðurlandi.
Á þriðjudag og miðvikudag:
Austlæg átt með vætu einkum suðaustanlands, en úrkomulítið vestanlands. Áfram milt í veðri.
Á fimmtudag:
Norðaustanátt með einhverri vætu í flestum landshlutum. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast suðvestanlands.
Á föstudag:
Norðaustanátt með skúrum norðan- og austanlands, en þurru og björtu veðri suðvestantil. Hiti breytist lítið.