Skýjað og dálítil súld
Suðaustan 5-10 m/s. Skýjað og dálítil súld með köflum, einkum við ströndina. Hiti 7 til 12 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á laugardag og sunnudag:
Suðlæg átt og bjart veður austantil á landinu, en hætt við þoku á annesjum fyrir norðan. Skýjað og súld með köflum á vestanverðu landinu. Hiti 10 til 16 stig, hlýjast norðaustanlands.
Á mánudag, þriðjudag og miðvikudag:
Suðlæg átt og hlýtt í veðri. Rigning með köflum sunnan- og vestanlands, en þurrt og bjart að mestu norðaustantil.