Skýjað með köflum í dag

Hæg suðlæg eða breytileg átt. Skýjað með köflum vestantil, en annars víða léttskýjað eða bjartviðri. Þó eru líkur á þokubökkum við ströndina sunnan- og austantil. Hæg breytileg eða vestlæg átt á morgun. Skýjað að mestu vestanlands og dálítil súld eða skúrir, en skýjað með köflum austantil. Hiti 13 til 23 stig að deginum, hlýjast norðaustan- og austanlands.