Skýjað með köflum í dag – rigning á morgun

Faxaflói
Hæg suðlæg átt og skýjað með köflum. Suðaustan 5-10 og rigning á morgun. Hiti 10 til 15 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á mánudag:
Hæg breytileg átt og víða léttskýjað. Þykknar upp vestantil á landinu með vaxandi sunnanátt og fer að rigna síðdegis. Hiti 11 til 18 stig, hlýjast á N- og A-landi.
Á þriðjudag, miðvikudag, fimmtudag og föstudag:
Suðvestanátt og vætusamt, en úrkomulítið austantil á landinu. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast á Austfjörðum.