Skýjað í dag en léttir til á morgun
Veðurhorfur næsta sólarhring
Hæglætisveður og skúri, einkum síðdegis. Úrkomuminna á morgun. Hiti 8 til 15 stig.
Á föstudag:
Hægviðri eða hafgola og víða léttskýjað. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast í innsveitum.
Á laugardag:
Fremur hæg suðvestanátt, víða bjart veður og hiti 15 til 20 stig, en lítilsháttar súld V-lands og hiti 8 til 14 stig þar.