Skýjað í dag
Veðurstofan gerir ráð fyrir austan 10-18 m/s og rigning eða súld, en hægari og skýjað með köflum norðantil fram á kvöld. Lægir smám saman í nótt, fyrst sunnantil. Austan og suðaustan 5-10 og skúrir eða rigning á morgun, en 8-13 norðantil fyrri part dags. Hiti á bilinu 5 til 17 stig, svalast á annesjum norðanlands í dag.