Skýjað í dag
Veðurstofan gerir ráð fyrir austlægri átt, víða 5-10 m/s, en 10-15 við suðausturströndina. Skýjað og lítilsháttar rigning suðaustan- og austanlands. Annars bjartviðri, en líkur á síðdegisskúrum. Sums staðar þokubakkar austantil og á annesjum norðanlands. Hiti 6 til 17 stig, hlýjast vestantil á landinu.