Skýjað í dag
Veðurspá fyrir Faxaflóa:
Vestlæg átt, 3-8 m/s og skýjað að mestu, en dálítil súld eða rigning í nótt og á morgun. Hiti 8 til 15 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á mánudag:
Austan- og norðaustan 8-15 m/s. Rigning víða um land, einkum austantil. Hiti 7 til 13 stig.
Á þriðjudag:
Norðaustan 5-10 m/s. Skúrir norðaustan- og austanlands, en bjartviðri suðvestan- og vestanlands. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast á Suðvesturlandi.
Á miðvikudag:
Norðaustlæg átt og skúrir um landið austanvert, en yfirleitt þurrt um landið vestanvert. Hiti breytist lítið.
Á fimmtudag og föstudag:
Suðlæg eða breytileg átt og dálitlar skúrir. Milt í veðri.