Skýjað en úrkomulítið
Veðurhorfur fyrir landið næsta sólarhringinn:
Suðaustan 8-15, hvassast vestast, en mun hægari á Norður- og Austurlandi. Hægari vindur á morgun. Smásúld eða rigning með köflum vestanlands í dag og dálítil rigning suðaustanlands síðdegis, en þurrt að kalla á morgun. Léttskýjað norðaustan- og austanlands. Hiti 9 til 15 stig, en allt að 22 stigum á Norðaustur- og Austurlandi.
Veðurspá fyrir Faxaflóa: Suðaustan 8-15, hvassast út við sjóinn en hægari á morgun. Smásúld með köflum í dag en síðan skýjað að mestu og úrkomulítið. Hiti 9 til 14 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Sunnan- og suðaustanátt, 8-13 m/s vestantil, en mun hægari austantil. Dálítil rigning eða súld um landið sunnan- og vestanvert, en léttskýjað að mestu norðaustan og austanlands. Hiti þar allt að 15 til 20 stig, en 9 til 14 stig vestantil.
Á föstudag:
Austlæg átt, 3-8 m/s, dálítil væta öðru hverju sunnan- og austanlands, en annars skýjað með köflum. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast á Norðurlandi.
Á laugardag, sunnudag, mánudag og þriðjudag:
Austlæg átt og fremur hlýtt í veðri, einkum norðanlands Rigning með köflum um sunnanvert landið, en annars úrkomulítið.
Mynd: Sumarkvöld á Suðurlandi. Víkurfréttamyndir/IngaSæm
www.vedur.is