Skýjað að mestu og smá væta af og til
	Vestlæg eða breytileg átt, 3-5 m/s, en suðlægari á morgun við Faxaflóa. Skýjað að mestu og smá væta af og til. Hiti 12 til 18 stig.
	
	
	Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
	
	Hæg vestlæg átt, en suðlægari á morgun. Skýjað og rigning eða súld af og til. Hiti 11 til 16 stig.
	
	
	Veðurhorfur á landinu næstu daga
	
	Á laugardag:
	Vaxandi suðaustanátt og dálitlar skúrir, þó síst A-lands. Suðaustan 10-18 m/s suðvestantil undir kvöld og fer að rigna. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast norðanlands.
	
	Á sunnudag:
	Sunnan og suðaustan 8-15 m/s og rigning en norðaustan 10-15 um landið NV-vert. Hægari og úrkomuminna NA-til síðdegis. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast N-til.
	
	Á mánudag:
	Norðlæg átt, 5-13 m/s. Rigning um landið norðanvert en léttir smám saman til syðra. Kólnar, og hiti 8 til 16 stig, svalast NV-til.
	
	Á þriðjudag:
	Breytileg átt 3-10 m/s en norðvestlæg átt, 8-13 NA-til fram eftir degi. Skýjað með köflum en sums staðar dálítilar skúrir með ströndinni. Hlýnar aftur í veðri.
	
	Á miðvikudag:
	Útlit fyrir sunnan og suðvestanátt með rigningu S- og V-til en bjartviðri annars staðar. Milt í veðri.


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				