Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Skyggnir vígir nýtt húsnæði
Mánudagur 6. september 2004 kl. 11:15

Skyggnir vígir nýtt húsnæði

Björgunarsveitin Skyggnir í Vogum hélt upp á 22 ára afmæli sitt á dögunum.

Við það tækifæri var nýtt hús sveitarinnar tekið formlega í notkun.

Fjöldi gesta var saman komin til að samgleðjast  sveitarmeðlimum á þessum merku tímamótum í starfi félagsins. Hófst athöfnin með því að formaður sveitarinnar rakti í stuttu máli sögu sveitarinnar og húsnæðismál hennar og sóknarpresturinn, sr. Carlos Ferrer, fór með bæn og blessaði húsið.

Ýmsir tóku til máls, þ.á.m. Sigmundur Eyþórsson slökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja og afhenti hann björgunarsveitinni undanfarakerru með dælubúnaði, sem hugsaður er til aðstoðar við slökkvistarf á Suðurnesjum. Kynnti hann í stuttu máli væntanlegan samstarfssamning sem í bígerð er milli Brunavarna Suðurnesja og Björgunarsveitarinnar Skyggnis í Vogum.

Vill björgunarsveitin þakka fyrir margar góðar gjafir sem sveitinni bárust af þessu tilefni, sérstaklega vil sveitin þakka hjónunum Guðmundi Í. Ágústssyni og Guðríði Þórðardóttur fyrir mjög svo rausnarlega peningagjöf og hjónunum Guðmundi Sigurðssyni og Sigrúnu Ingadóttur fyrir rausnarlegan stuðning nú sem og á undanförnum árum.

Að lokum var boðið til kaffisamsætis í hinu nýja húsnæði.

Mynd og texti af vogar.is
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024