Skúrir í dag
Klukkan 6 var suðaustlæg átt, víða 5-12 m/s. Skýjað en þurrt sunnanlands, en skýjað með köflum norðan- og vestanlands. Hiti var 8 til 14 stig, hlýjast á Vestfjörðum.
Veðurhorfur á landinu til kl. 18 á morgun:
Austan og suðaustan 8-13 m/s og skúrir eða rigning með köflum sunnan- og suðvestanlands, en annars hægari og skýjað með köflum. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast norðanlands.