Skúrir í dag, rok og rigning í nótt
Klukkan 6 var var suðlæg átt, víða 5-10 m/s vestanlands, en annars hægari. Skúrir sunnan- og vestanlands, en annars skýjað og þurrt. Hiti 9 til 13 stig.
Veðurhorfur á landinu til kl. 18 á morgun:
Sunnan og suðaustan 8-13 m/s vestanlands, en annars hægari. Skúrir sunnan- og vestanlands, en annars skýjað með köflum og þurrt að kalla. Gengur í austan 10-15 með rigningu sunnan- og suðvestanlands í nótt, en mun hægari og þykknar upp annars staðar. Suðaustan 8-15 og rigning sunnan- og vestantil á landinu, en hægari og úrkomulítið norðaustantil. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast fyrir norðan.