Skúrir í dag, rigning í nótt

Veðurhorfur á landinu til kl. 18 á morgun:
Sunnan og suðaustan 3-8 og skúrir sunnan- og vestantil en annars skýjað með köflum. Rigning suðvestantil í nótt og vestantil í fyrramálið en skúrir þar síðdegis á morgun. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast í innsveitum norðan- og norðaustanlands.