Skúrir í dag – rigning á morgun

Faxaflói
Suðvestan 8-13 m/s og skúrir. Hægari í kvöld og nótt, en austan 8-13 og rigning á morgun, einkum sunnantil. Hiti 5 til 10 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag og föstudag:
Gengur í fremur stífa norðan átt með rigningu um landið norðanvert, en léttir smám saman til fyrir sunnan. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast syðst.
Á laugardag, sunnudag og mánudag:
Lítur út fyrir nokkuð hvassa norðanátt með rigningu eða skúrum, en þurru og björtu veðri sunnantil. Fremur svalt í veðri.